Framkvæmdir og endurbætur.
S.l. sumar var tjaldstæðið, sem er við litlu húsin og aðalskálann í Hólaskjóli, hækkað og þökulagt. Einnig voru skolplagnir og frárennsli löguð og komið í gott horf.
Unnu þar menn frá ýmsum bæjum í Skaftártungunni af miklum dugnaði og lögðu margir fram vélar og tæki sín af mikilli óeigingirni. Þar hefur farið fremstur í flokki Sæmundur í Múla, komið bæði með jarðýtu og gröfu, sem hefur verið ómetanlegt. Vatnsmálin eru komin í gott lag, búið er að bæta við 1 safntanki, svo nú ætti ekki að verða vatnsskortur þó sturturnar verði notaðar ótæpilega!
Í vor voru keyptar 2 gaseldavélar, 1 fyrir hvora hæð í aðalhúsinu. Þær eru með 5 hellum hvor.
Neðri hæðin hefur verið lagfærð og gluggi settur á austurenda. Útihurðin er orðin sem ný, og nú er mun vistlegra þar en áður.
Búið er að setja nokkrar myndir inn frá þökulagningunni. Þær eru undir flipanum: Myndir/Vinnumyndir.


